Sálmabók

372. Kallið er komið

1 Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vina skilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna
er sefur hér hinn síðsta blund.

2 Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.

3 Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.

4 Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi
glaðir vér megum
þér síðar fylgja' í friðarskaut.

T Valdimar Briem – Sb. 1886
Kallið er komið
L Þjóðlag frá Slésíu – Breslau 1842 – JH 1885
Schönster Herr Jesu
Sálmar með sama lagi 67a 67b 67c 67d
Eldra númer 271
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is