Sálmabók

373a. Allt eins og blómstrið eina

Um dauðans óvissan tíma

1 Allt eins og blómstrið eina
upp vex á sléttri grund
fagurt með frjóvgun hreina
fyrst um dags morgunstund,
á snöggu augabragði
af skorið verður fljótt,
lit og blöð niður lagði –
líf mannlegt endar skjótt.

2 Svo hleypur æskan unga
óvissa dauðans leið
sem aldur og ellin þunga,
allt rennur sama skeið.
Innsigli engir fengu
upp á lífsstunda bið
en þann kost undir gengu
allir að skilja við.

3 Dauðinn má svo með sanni
samlíkjast, þykir mér,
slyngum þeim sláttumanni
er slær allt hvað fyrir er:
grösin og jurtir grænar,
glóandi blómstrið frítt,
reyr, stör sem rósir vænar
reiknar hann jafn fánýtt.

4 Lífið manns hratt fram hleypur,
hafandi enga bið,
í dauðans grimmar greipur,
gröfin tekur þá við.
Allrar veraldar vegur
víkur að sama punkt,
fetar þann fús sem tregur
hvort fellur létt eða þungt.

5 Hvorki fyrir' hefð né valdi
hopar dauðinn eitt strik,
fæst síst með fögru gjaldi
frestur um augnablik,
allt hann að einu gildir
þótt illa líki' eða vel,
bón ei né bræði mildir
hans beiska heiftarþel.

6 Menn vaða' í villu og svíma,
veit enginn neitt um það
hvernig, á hverjum tíma
eða hvar hann kemur að.
Einn vegur öllum greiðir
inngang í heimsins rann,
margbreyttar líst mér leiðir
liggi þó út þaðan.

7 Afl dauðans eins nam krenkja
alla í veröld hér.
Skal ég þá þurfa´ að þenkja
hann þyrmi einum mér?
Adams er eðli runnið
í mitt náttúrlegt hold,
ég hef þar og til unnið
aftur að verða mold.

8 Hvorki með hefð né ráni
hér þetta líf ég fann,
sálin er svo sem að láni
samtengd við líkamann.
Í Herrans höndum stendur
að heimta sitt af mér,
dauðinn má segjast sendur
að sækja hvað skaparans er.

9 Nú vel, í Herrans nafni
fyrst nauðsyn ber til slík,
ég er ei þeirra jafni
sem jörðin geymir nú lík.
Hvenær sem kallið kemur
kaupir sig enginn frí,
þar læt ég nótt sem nemur,
neitt skal ei kvíða því.

10 Ég veit minn ljúfur lifir
lausnarinn himnum á,
hann ræður öllu yfir,
einn heitir Jesús sá,
sigrarinn dauðans sanni
sjálfur á krossi dó
og mér svo aumum manni
eilíft líf víst til bjó.

11 Með sínum dauða' hann deyddi
dauðann og sigur vann,
makt hans og afli eyddi,
ekkert mig skaða kann,
þó leggist lík í jörðu
lifir mín sála frí,
hún mætir aldrei hörðu
himneskri sælu í.

12 Jesús er mér í minni,
mig á hans vald ég gef
hvort ég er úti' eða inni,
eins þá ég vaki' og sef.
Hann er mín hjálp og hreysti,
hann er mitt rétta líf,
honum af hjarta' eg treysti,
hann mýkir dauðans kíf.

13 Ég lifi' í Jesú nafni,
í Jesú nafni' eg dey,
þó heilsa' og líf mér hafni
hræðist ég dauðann ei.
Dauði, ég óttast eigi
afl þitt né valdið gilt,
í Kristí krafti' eg segi:
Kom þú sæll þá þú vilt.

T Hallgrímur Pétursson 1661 – Sb. 1671
Som fagre blomen ydder
L Antwerpen 1540 – Thomissøn 1569 – Sb. 1589
Det dages nu i Østen
Eldra númer 273
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is