Sálmabók

385. Gef mér þinn kærleik, Kristur

1 Gef mér þinn kærleik, Kristur,
kom, ég vil helgast þér,
ljósvana heimur leitar,
leitar að þér hjá mér.

2 Móta þú mig að nýju,
mynd þína í mér sjá,
helga þú himni þínum
hjarta míns innstu þrá.

3 Þér skal í hlýðni þjóna
þrek mitt allt, vilji, mál.
Þú, lífsins ljósið eina,
lýs gegnum mína sál.

4 Umvef mig elsku þinni,
öll veröld leitar þín.
Láttu þá líf þitt finna
sem líta og ná til mín.

T Arne H. Lindgren 1978 – Sigurbjörn Einarsson 1994
Öppna mig för din kärlek
L Roland Forsberg 1978
Öppna mig för din kärlek

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is