Sálmabók

388. Í þennan helga Herrans sal

1 Í þennan helga Herrans sal
vort hjarta leita griða skal
því úti herjar heift og stríð
en hér er eilíf blíðutíð.

2 Í þennan helga Herrans sal
úr heimsins glaumi bera skal
vor börn að skærri skírnarlind
að skapist þau í nýrri mynd.

3 Í þennan helga Herrans sal
úr heimsins solli ganga skal
hinn ungi fram, svo festi eið
að finnast trúr í lífi' og deyð.

4 Og hér skal vígt hvert heilagt band
til heilla fyrir þjóð og land
og hér skal tilreitt Herrans borð
og hér skal boðað lífsins orð.

5 Það orð sem græðir öll vor mein,
það orð sem vermir kaldan stein,
það orð sem kveikir kraft og móð
og kallar líf í dauða þjóð.

6 Svo kom þú hingað, kristin sál,
ó, kom með heilög lofsöngsmál,
kom hingað klökk og hjartans fús,
í heimi finnst ei betra hús.

7 Og þetta húsið helgum vér,
ó, himna Drottinn, einum þér
í Jesú trú með Jesú frið,
í Jesú nafni halt því við.

T Matthías Jochumsson – Sb. 1886
L Kempten um 1000 – Erfurt 1524 – Sb. 1589
Komm, Gott Schöpfer, Heiliger Geist
Sálmar með sama lagi 518 520
Eldra númer 269
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is