Sálmabók

395. Í þínu nafni uppvaknaður

Ungmenna bænarkorn á morgna

1 Í þínu nafni uppvaknaður
er ég, Jesú, Guð og maður!
2 Lof sé þér fyrir líf og gæði,
líkamans heilsu, föt og fæði,
3 og allt það þín óþreytt mildi
aumum mér til leggja vildi.
4 Bið ég þig, minn blíði Herra,
blessan þína ei lát þverra,
5 hegðan minni´ á hverjum degi
haltu´ á sönnum dyggða vegi,
6 lát mig njóta ungdóms ára
er þú barst í manndóm klára.
7 Gef uppfræði æsku mína
andi þinn fyrir verkan sína
8 svo í ótta´ og elsku þinni
ávöxt góðan færa kynni.
9 Hlýðni, tryggð og trúna bjarta
tendra´ og nær í mínu hjarta
10 að mér svo með aldri hrönnum
aukist náð hjá Guði´ og mönnum.
11 Heims og satans hrekkjasnörum
hrind frá mér svo ei óvörum
12 mig ógætinn í sér festi
eður dragi´ í synd og lesti.
13 Vernda mig frá voða öllum,
vondum dauða´ og slysaföllum,
14 englar þínir að mér gæti
engum svo ég meiðslum mæti.
15 Mitt verklag og miskunn þína
mér lát vera unun mína.
16 Auk mér skilning orða þinna
eru þau lampi fóta minna.
17 Gef mér jafnan gott að læra,
góðlyndum við alla vera,
18 varfærum í velgengninni,
vongóðum, þó raunir finni.
19 Ljúfi Jesú, með lífi’ og öndu
legg ég mig í þínar hendur,
20 þar vil ég fús að lyktum lenda.
Lofaður sértu utan enda.

T Hallgrímur Pétursson, 1759 – Vb. 2013
L Íslenskt þjóðlag – ÍÞ 1906 – Vb. 2013
Sálmar með sama lagi 419
Eldra númer 928
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is