Sálmabók

455. Þú, Guð, ríkir hátt

1 Þú, Guð, ríkir hátt yfir hverfleikans straum
sem hönd þín ein megnar að leiða,
lát vald þitt í aldanna veltandi glaum
þinn vegsemdarljómann út breiða.

2 Ó, Herra, sem birtir þín himnesku spor
í heimsrás og lífinu þjóða,
það gef að til hamingju verk snúist vor
og verði til sigurs því góða.

3 Og hrek þú jafnt myrkur sem falsljós oss frá
svo förum af réttri leið eigi
en sigurbjört lýsi þín sólin oss há
á sannleiks og réttlætis vegi.

4 Þú blessar hvert verk sem er byrjað í þér,
oss byrja lát þínum í anda,
það allt sem vér plöntum sinn ávöxt þá ber
og allt sem vér byggjum mun standa.

5 Til ættlandsins himneska blítt þú oss bend
og blessa vort ættland á jörðu,
þess framfarir styð þú og farsæld því send,
ó, faðir, en væg því við hörðu.

T Steingrímur Thorsteinsson – Sb. 1886
L Johan P.E. Hartmann 1852 – JH 1885
Til himlene rækker din miskundhed
Sálmar með sama lagi 154 452
Eldra númer 517
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is