Sálmabók

464a. Þú heyrir, Guð, að hrópar

1 Þú heyrir, Guð, að hrópar
á hjálp þín dimma jörð.
Ó, vek þá von að nýju
sem var að engu gjörð.
Allt skapar heilög höndin þín.
Í dauðans dapra heimi
þinn dagur rís og skín.

2 Já, send að nýju sumur
með sól og tæran blæ
og blóm og barnagleði
með bros á mold og sæ
er færi boð um frið og sátt
að vér sem vinir elskum
þá veröld sem þú átt.

T Svein Ellingsen, 1978 – Sigurbjörn Einarsson 1985 – Vb. 1991
O Herre! Lytt til ropet
L Kirstín Erna Blöndal 2006
Eldra númer 546
Eldra númer útskýring T

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is