Sálmabók

48. Af himnum ofan boðskap ber

1 Af himnum ofan boðskap ber
oss, börnum jarðar, englaher.
Vér fögnum þeirri fregn í trú,
af fögnuð hjartans syngjum nú.

2 Í dag er heimi frelsi fætt
er fær vor mein og harma bætt,
það barnið þekkjum blessað vér,
vor bróðir Jesús Kristur er.

3 Og oss til merkis er það sagt:
Í aumum reifum finnum lagt
það barn í jötu' er hefur heim
í hendi sér og ljóssins geim.

4 Því gleðjumst allir, góðir menn,
og göngum þangað allir senn
þá jólagjöf, Guðs son, að sjá
er sauða hirðar gleðjast hjá.

5 Æ, velkominn oss vertu þá
er vorar syndir tókst þig á.
Oss, Jesú, kenn að þakka þér
að þínir bræður urðum vér.

6 Ó, Guð sem ráð á öllu átt,
hví ertu kominn hér svo lágt,
í tötrum lagður hart á hey
sem hefðir dýrri bústað ei?

7 Þótt veröld öll sé víð og löng
sú vaggan er þér samt of þröng
og þín ei verð þótt væri' hún full
af vegsemd þeirri' er skín sem gull.

8 Svo hefur, Drottinn, þóknast þér
og þá vilt speki kenna mér
að heimsins auð og allt hans glys
þú eigi virðir meira' en fis.

9 Því bú til vöggu' í brjósti mér,
minn besti Jesú, handa þér.
Í hjarta mínu hafðu dvöl
svo haldi' eg þér í gleði' og kvöl.

10 Af hjarta' og tungu heilög dýrð
sé Herrans Jesú föður skýrð.
Heyr barna þinna bæn og þökk
og brjóstin, Guð, sjá glöð og klökk.

T Martin Luther 1535 – Sb. 1589 – Stefán Thorarensen – Vb. 1861
Vom himmel hoch, da komm ich her
L Martin Luther 1539 – Sb. 1589
Vom Himmel hoch, da komm ich her
Sálmar með sama lagi 393 489
Eldra númer 85
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Lúk. 2.7

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is