Sálmabók

498. Kristur, mér auk þú enn

1 Kristur, mér auk þú enn
elsku til þín.
Sú er í lotning ljúf
löngunin mín.
Heyr þetta hjartans mál:
Heit verði' í minni sál
:,: elskan til þín. :,:

2 Heimsgæðin fánýt fyrr
freistuðu mín.
Beinist nú bæn og þrá,
bróðir, til þín.
Óskin mín eina' er sú:
Eflist í von og trú
:,: elskan til þín. :,:

3 Það sé mín hinst í heim
hugbót og þrá,
lausnarinn ljúfi, þér
lofgjörð að tjá.
Aukist er ævin þver
enn meir í hjarta mér
:,: elskan til þín. :,:

T Elizabeth Prentiss 1856 – Friðrik A. Friðriksson, 1967 – Sb. 1972
More Love to Thee, O Christ
L William H. Doane 1870 – Svb. 1991
More Love to Thee, O Christ
Eldra númer 345
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is