Sálmabók

5. Er vetrarnóttin nístir lönd

1 Er vetrarnóttin nístir lönd
og nýtt fer kirkjuár í hönd
í von og lotning lítum vér
það ljós á jörð sem tendrað er.

2 Þó myrk sé nótt hann með oss er
sem mennska hagi valdi sér.
Oss boðin færir kertakrans
um komu Jesú, ljósið hans.

3 Það enn á ný um foldu fer
og flytur mildi Guðs með sér.
Hvert kertalog er loforð slíkt
að líf vort allt sé honum vígt.

4 Um síðir veröld veg sinn fer.
Þá veit oss, Guð, að lifum vér
það kirkjuár sem aldrei dvín
er eilíft ljós þitt bjartast skín.

T Edvard Evers 1914 – Svein Ellingsen 1957, 1971 – Gunnar M. Sandholt 1985 – Vb. 1991
När vintermörkret kring oss står
L Johann Crüger 1640 – Vb. 1991
Lob sei dem allmächtigen Gott
Eldra númer 557
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is