Sálmabók

503. Jesús, engar helgimyndir

Rennur upp um nótt

1 Jesús, engar helgimyndir. Jesú blóð þvær burtu syndir. Mín tunga lofar þig, lofar þig.

2 Jesú fórn sem öllu hlífir. Jesú gjöf sem gefur lífið. Mitt hjarta lofar þig, lofar þig, lofar þig. Eins og sól sem rennur upp um nótt og gegnum myrkrið skín og bjartan daginn kveikir skjótt ertu sólin mín.

3 Jesús, risinn upp frá dauðum. Jesús, vinur minn í nauðum. Mín sála lofar þig, lofar þig, lofar þig. Eins og sól ...

T Ísak Harðarson 2011 – Vb. 2013
L Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson 2011 – Vb. 2013
Eldra númer 860
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is