Sálmabók

504. Jesú nafn um aldir alda

1 Jesú nafn um aldir alda
unað veitir Drottins hjörð,
á því tímans tönn ei vinnur,
tendrar ljós á vorri jörð.
Jesú nafn með undra afli
allar sálir dregið fær
inn að Drottins ástarhjarta,
alsælunnar himni nær.
Nafn þitt, Jesú, ég vil elska,
Jesú nafn er huggun mín.
Í hans nafni fann ég frelsi,
frið sem aldrei, aldrei dvín.

2 Jesú nafn skal hærra, hærra
hljóma yfir vorri jörð,
Jesú nafn og ekkert annað
eflir Drottins litlu hjörð,
hrekur burtu hatrið blinda,
hrelldum sálum veitir frið,
gefur þrek og þrótt að stríða
þeim sem elska réttlætið.
Nafn þitt, Jesú, ég vil elska...

3 Jesú nafn með ljúfum ljóma
líkt og morgunstjarna skær
yfir veginn villugjarna
vonarbjörtum geislum slær
og er sólin aldrei framar
yljar vora köldu jörð
Jesú nafn um aldir alda
alsæl tignar Drottins hjörð.
Nafn þitt, Jesú, ég vil elska...

T David Welander 1923 – Sigurbjörn Sveinsson, 1931
Jesus' Name! Oh Let Me Sing It
L Frá Suður-Afríku (Zulu)

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is