Sálmabók

535. Í bljúgri bæn

1 Í bljúgri bæn og þökk til þín
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.

2 Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt sem miður fer
og man svo sjaldan eftir þér.

3 Sú ein er bæn í brjósti mér
ég betur kunni þjóna þér,
því veit mér feta veginn þinn
að verðir þú æ Drottinn minn.

T Pétur Þórarinsson 1974 – Vb. 1991
L Amerískt þjóðlag – Vb. 1991
Banks of the Ohio
Eldra númer 551
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is