Sálmabók

573. Starfa því nóttin nálgast

1 Starfa því nóttin nálgast,
nota vel æviskeið,
ekki þú veist nær endar
ævi þinnar leið.
Starfa því aldrei aftur
ónotuð kemur stund,
ávaxta því með elju
ætíð vel þín pund.

2 Starfa því nóttin nálgast,
notaðu dag hvern vel,
starfa með ugg og ótta,
arðinn Drottni fel.
Starfa, þú stendur eigi
styrkvana' í heimi hér.
Vanti þig ekki viljann
vís er hjálpin þér.

3 Starfa því nóttin nálgast,
nóg hér að vinna er,
Guð þér af gnægtum sinnar
gæsku kraftinn lér.
Starfa með bæn og biðlund,
blessast þá allt þitt ráð,
víst mun þeim vel er biður
veitast allt af náð.

4 Starfa því nóttin nálgast
niðdimm er hvílist hold
dauðans í dróma bundið
djúpt í kaldri mold.
Starfa í trú, þá styður
sterk þig og voldug hönd.
Herranum Jesú hæstum
helga líf og önd.

T Anna L. Walker 1854 – Jón Helgason – Vb. 1924
Work, for the night is coming
L Lowell Mason 1864 – Ssb. 1936
DILIGENCE / WORK SONG
Eldra númer 361
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is