Sálmabók

579. Eigi stjörnum ofar

1 Eigi stjörnum ofar
á ég þig að finna,
meðal bræðra minna
mín þú leitar, Guð.

2 Nær en blærinn, blómið,
barn á mínum armi,
ást í eigin barmi,
ertu hjá mér, Guð.

3 Hvar sem þrautir þjaka
þig ég heyri biðja:
Viltu veikan styðja,
vera hjá mér þar?

4 Já, þinn vil ég vera,
vígja þér mitt hjarta,
láta ljós þitt bjarta
leiða, blessa mig.

T Anders Frostenson 1968 – Sigurbjörn Einarsson – Sb. 1972
Högt i Stjärnehimlen
L Hans Puls 1962 – Vb. 1976
Hilf, Herr meines Lebens
Eldra númer 367
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is