Sálmabók

581. Með Jesú byrja ég

1 Með Jesú byrja ég,
með Jesú vil ég enda
og æ um æviveg
hvert andvarp honum senda.
Hann er það mark og mið
er mæni' eg sífellt á.
Með blessun, bót og frið
hann býr mér ætíð hjá.

2 Ef Jesúm ég æ hef
um jörð eg minna hirði,
um heimsins glys ei gef
og glaum hans einskis virði.
Mitt bætir Jesús böl,
mér byrðar léttir hann.
Ef hann á hjá mér dvöl
mig hrella neitt ei kann.

3 Af allri sál og önd
mig allan þér ég færi,
mitt hjarta, tungu' og hönd
þér helga' eg, Jesú kæri.
Ó, tak það, Guð minn, gilt
og gef ég æ sé þinn.
Gjör við mig sem þú vilt,
þinn vilji æ sé minn.

T Johann K. Ziegler 1718 – Hans A. Brorson 1734 – Valdimar Briem – Sb. 1886
Mit Jesu fang‘ ich an, mit Jesu will ich enden / Min Jesus er for mig begyndelse og ende
L Martin Rinckart um 1630 – Crüger 1647 – JH 1885
Nun danket alle Gott
Eldra númer 44
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is