Sálmabók

591. Frá Guði er líf mitt

Litlir lærisveinar

1 Frá Guði er líf mitt, ég gæti þess vel
að gera ei jörðinni mein.
Ég köllun hans heyri og Kristi mig fel,
hann kallar mig lærisvein.
Við syngjum því öll og við segjum í kór
saman af gleði, lítil og stór:
Við erum litlir lærisveinar,
litlir lærisveinar.

2 Á undan mér Guðs sonur, frelsarinn, fer,
ég fylgi í sporin hans hrein.
Hann kennir mér það sem að kærleikans er
og kallar mig lærisvein.
Við syngjum því öll ...

T Pétur Þórarinsson 1992 – Sb. 1997
L Pétur Þórarinsson 1992 – Sb. 1997
Eldra númer 707
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is