Sálmabók

596. Fús ég, Jesú, fylgi þér

1 Fús ég, Jesú, fylgi þér
fyrst að kall þitt hljómar mér.
Eg vil glaður elska þig,
þú átt að leiða mig.
:,: Fús ég fylgi þér, :,:
fús ég fylgi þér,
já, hvert sem liggur leið.

2 Litlu auga' er leiðin myrk,
litla fætur vantar styrk.
Stundum þrýtur styrkur minn,
mig styrki kraftur þinn.
Fús ég fylgi þér ...

3 Síðar munu syndir hér
sitja' í vegi fyrir mér.
Hjarta mitt þó hugrótt er,
ó, Herra', ef fylgi' ég þér.
Fús ég fylgi þér ...

T Lucinda M. Beal Bateman um 1886 – Bjarni Eyjólfsson um 1945 – Vb. 1991
(Jesus) I will follow Thee
L James H. Rosecrans 1888 – Vb. 1991
GLENN / (Jesus) I Will Follow Thee
Eldra númer 555
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is