Sálmabók

612. Vor Guð er borg

1 Vor Guð er borg á bjargi traust,
hið besta sverð og verja,
hans armi studdir óttalaust
vér árás þolum hverja.
Nú geyst því gramur er,
hinn gamli óvin fer,
hans vald er vonsku nægð,
hans vopn er grimmd og slægð,
á oss hann hyggst að herja.

2 Með eigin kröftum enginn verst,
þó eitt má frelsun valda:
hinn rétti maður með oss berst
er mannkyns skuld réð gjalda.
Sá heitið háleitt ber,
það heiti Jesús er,
hann Guðs er eðlis einn
og annar Guð ei neinn.
Hann víst mun velli halda.

3 Þótt djöflum fyllist veröld víð
þeim vinnst ei oss að hrella
því Jesús vor oss veikum lýð
er vörn og hjálparhella.
Þótt mannkyns morðinginn
nú magni fjandskap sinn
hann engu orka kann
því áður dóm fékk hann.
Eitt orð má fljótt hann fella.

4 Hver óvin Guðs skal óþökk fá,
hvert orð vors Guðs skal standa
því oss er sjálfur Herrann hjá
með helgri gjöf síns anda.
Þótt taki fjendur féð,
já, frelsi' og líf vort með
það happ þeim ekkert er
en arfi höldum vér.
Þeir ríki Guðs ei granda.

T Martin Luther, 1529 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
Ein feste Burg ist unser Gott
L Martin Luther, 1529 – Klug 1533 – Gr. 1594
Ein feste Burg ist unser Gott
Sálmar með sama lagi 527 693 792
Eldra númer 284
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is