Sálmabók

616. Þú opnar, Drottinn, hús þitt hér

1 Þú opnar, Drottinn, hús þitt hér
og himin ljóssins trúin sér.
Í páskaljóma lýsir hann
með lífsins gjöf sem krossinn vann.

2 Og þú sem átt á öllu ráð,
send anda þinn með kraft og náð
að lífga, hreinsa hug og sál
og helga tungu, söng og mál.

3 Lát vakna kærleik, von og trú,
á vald þíns ríkis huga snú,
að húsi þínu hjartað ger
sem helgað verði einum þér.

4 Vér finnum ástarþelið þitt
sem þekkir týnda barnið sitt
og vilt það fá í faðminn þinn
svo fagni allur himinninn.

5 Guðs sonur, Jesús, orðið er
sem ást Guðs föður vitni ber
og heilags anda hjálp og mál
fær honum vist í trúrri sál.

6 Í lotningu vér lútum hér
í lífsins húsi einum þér
og færum lof sem framast má
vor fátæk önd og rómur tjá.

T Sigurbjörn Einarsson 1998 – Vb. 2013
L Gochsheim 1628 – Görlitz 1648 – Sb. 1871
Herr Jesu Christ, dich zu uns wend
Sálmar með sama lagi 122
Eldra númer 898
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is