Sálmabók

619. Þú, kirkja Guðs, í stormi stödd

1 Þú, kirkja Guðs, í stormi stödd,
ó, stýrðu beint í lífsins höfn
og hræðstu' ei manna meinráð köld
né mótbyr þann er blæs um dröfn.
Drag upp þín segl og hátt við hún
lát hefjast krossins sigurrún.

2 Gunnfánans kross og konungs teikn
sem kveður lýð þinn fram í stríð
sigrandi ber við himin hátt
og heitir bjartri friðartíð.
Drag því upp segl og hátt við hún
lát hefjast krossins sigurrún.

3 Slakaðu' ei hót þótt hækki sjór
af haturs stormi' og ofsagný,
þótt braki sérhvert band og rá
og bólgin þéttist kólguský.
Drag upp þín segl og hátt við hún
lát hefjast krossins sigurrún.

4 Ofdramb og heimsins hrokageip
ei hræðast þarftu' á sigurleið.
Drottinn hinn sterki stendur enn
við stýrisvöl í háska' og neyð.
Drag þú upp segl og hátt við hún
lát hefjast krossins sigurrún.

T Friðrik Friðriksson, 1920 – Sb. 1945
L Henri F. Hemy 1864 – James G. Walton 1874 – Vb. 1946
ST. CATHERINE (Hemy)/ Faith of Our Fathers
Eldra númer 290
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is