Sálmabók

62. Sjá, morgunstjarnan blikar blíð

1 Sjá, morgunstjarnan blikar blíð
sem boðar náð og frelsi lýð
og sannleiksbirtu breiðir.
Þú blessun heims og harmabót,
þú heilög grein af Jesse rót
mig huggar, lífgar, leiðir.
Jesú, Jesú,
líknin manna, lífið sanna,
ljósið bjarta,
þér ég fagna, hnoss míns hjarta.

2 Þú dásöm perla, dýr og skær,
þú djásnið mannkyns, Jesú kær,
þú eilíf alheims gleði,
þú himinlilja' í heiminum,
þitt heilagt evangelíum
er svölun særðu geði.
Herra, Herra,
himneskt manna, hósíanna!
Hátign þinni
vegsemd, dýrð og lof ei linni.

T Philipp Nicolai 1599 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
Wie schön leuchtet der Morgenstern
L Philipp Nicolai 1599 – Sb. 1619
Wie schön leuchtet der Morgenstern
Sálmar með sama lagi 144 367
Tilvísun í annað lag 144
Eldra númer 89a
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Opb. 22.16

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is