Sálmabók

620. Ó, maður, hvar er hlífðarskjól

1 Ó, maður, hvar er hlífðarskjól
á heimsins köldu strönd?
Hvar leiftrar Drottins dýrðarsól
á dauðans skuggalönd?
Hvar stöðvast tímans hála hjól
en hnýtast eilíf bönd?
Og hvar er sæl und sólarstól
vor sjúk og dauðþreytt önd?

2 Vort hlífðarskjólið heimi í
er húsið, Guð minn, þitt,
ei hret né stormar hreyfa því
né hræða brjóstið mitt,
þar gefur náðin Herrans hlý
mér himinljósið sitt,
í hjartans unun hér ég bý
því hér er sekum fritt.

3 Guð helgur andi, hingað snú
og helga þennan sal,
Guð helgur andi, hjá oss bú
og helga munns vors tal,
Guð helgur andi, hjartans trú
þá hljóma til þín skal
uns oss að lokum leysir þú
til lífs úr táradal.

T Matthías Jochumsson 1868 – Sb. 1886
L Hymnodia Sacra 1742 – ÍÞ 1906 – Vb. 1976 / R Róbert A. Ottósson, 1967
Hvar mundi vera hjarta mitt
Sálmar með sama lagi 751
Eldra númer 268
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is