Sálmabók

630. Heyr, himna smiður

1 Heyr, himna smiður,
hvers skáldið biður,
komi mjúk til mín
miskunnin þín.
Því heit eg á þig,
þú hefur skaptan mig,
ég er þrællinn þinn,
þú ert Drottinn minn.

2 Guð, heit eg á þig
að græðir mig,
minnst, mildingur, mín,
mest þurfum þín.
Ryð þú, röðla gramur,
ríklyndur og framur,
hölds hverri sorg
úr hjartaborg.

3 Gæt, mildingur, mín,
mest þurfum þín
helst hverja stund
á hölda grund.
Set, meyjar mögur,
máls efni fögur,
öll er hjálp af þér,
í hjarta mér.

T Kolbeinn Tumason um 1200 – Sb. 1945
L Þorkell Sigurbjörnsson 1973 – Vb. 1976
Eldra númer 308
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is