Sálmabók

634. Guð faðir, þín hátign, þitt heilaga vald

1 Guð faðir, þín hátign, þitt heilaga vald
er hulið í dýrð bak við geislanna fald
frá ljóma þíns auglits. Þitt eilífa ráð
fá englarnir hæstu ei skynjað né tjáð.

2 En með þeim vér tignum þín voldugu verk
og vitum að hönd þín er gjöful og sterk,
að hjálp þín ei brestur né geigar þín gjörð,
að gæska þín umvefur himin og jörð.

3 Þú gefur oss lífið, vér lifum í þér,
þín líkn er í öllu, jafnt hulin sem ber.
Þótt falli vor heimur sem fis eða strá
þín föðurnáð varir og breytast ei má.

4 Svo hefur þú birt oss þitt blessaða vald,
svo brosir þín mynd gegnum himnanna tjald
því sonur þíns kærleika, Kristur, er hér,
hann kom þig að birta og gefa oss þér.

5 Og trúin þig sér er vér tilbiðjum hann
sem tók á sig duft vort og frelsið oss vann,
þá vitnar þinn andi að vald þitt og ráð
er viska og trúfesti, elska og náð.

T Walter C. Smith 1867 – Sigurbjörn Einarsson – Vb. 2013
Immortal, Invisible, God Only Wise
L William Croft 1708 – BÞ 1903
HANOVER / O Worship the King
Sálmar með sama lagi 706 725 94a
Eldra númer 836
Eldra númer útskýring T

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is