Sálmabók

639. Orð Jesú eðla sætt

1 Orð Jesú eðla sætt
er hans verkfæri.
Helst fær það hugann kætt
þó hrelldur væri.

2 Hann gefur hreina trú,
hann fallinn reisir,
hann veikan hressir nú,
hann bundinn leysir.

3 Ekki' er í sjálfsvald sett,
sem nokkrir meina,
yfirbót, iðrun rétt
og trúin hreina.

4 Hendi þig hrösun bráð
sem helgan Pétur,
undir Guðs áttu náð
hvort iðrast getur.

5 Gráta skalt glæpi sárt
en Guði trúa,
elska hans orðið klárt,
frá illu snúa.

T Hallgrímur Pétursson Ps. 12
L Nürnberg 1534 – Gr. 1607 – PG 1861
Sálmar með sama lagi 428 659
Tilvísun í annað lag 638
Eldra númer 323
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is