Sálmabók

642. Svo stór synd engin er

1 Svo stór synd engin er
að megi granda þér
ef þú iðrandi sér
í trúnni Jesúm hér.

2 Sé ég þig, sæll Jesú,
svo sem álengdar nú,
von mína' og veika trú
við bið ég hressir þú.

3 Þá ég sé sárin mín
særir mig hjartans pín
en sárin þá sé ég þín
sorg öll og kvíðinn dvín.

4 Lát mig, ó, Jesú kær,
aldrei svo vera þér fjær
að sjái' eg ei sár þín skær
þá sorg og eymd mig slær.

5 Ég fel í sérhvert sinn
sál og líkama minn
í vald og vinskap þinn,
vernd og skjól þar ég finn.

T Hallgrímur Pétursson Ps. 47
L Kvæðabók Ólafs Jónssonar á Söndum fyrir 1627 – Melodia, handrit frá 17. öld – Vb. 1976
Ó Jesú elsku hreinn
Eldra númer 327
Eldra númer útskýring T

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is