Sálmabók

644. Mér er fyrirgefið

1 Mér er fyrirgefið,
Drottinn gaf sitt líf.
Þér sé dýrð og vegsemd,
mín er krossins hlíf.

2 Leiðir mig og styrkir,
lausnari' ertu minn.
Þér sé dýrð og vegsemd,
lífgar andi þinn.

3 Þarf ég ei að óttast
því þú ert mér hjá.
Þér sé dýrð og vegsemd,
þér ég treysta má.

T Anna-Mari Kaskinen 1982 – Gísli Jónasson 2006 – Vb. 2013
Mér er fyrirgefið (Maksettu on velkani mun)
L Pekka S. Simojoki 1982 – Vb. 2013
Maksettu on velkani mun
Eldra númer 960
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is