Sálmabók

645. Í Drottni ef viltu deyja

1 Í Drottni' ef viltu deyja
Drottni þá lifðu hér,
til ills lát ei þig teygja,
orð Guðs sé kærast þér.
Sæll er sá svo við býst.
En ef þig ófall hendir
aftur í tíma vendir,
undan drag iðrun síst.

2 Brot þín skalt bljúgur játa
en bið þó Guð um náð,
af hjarta hryggur gráta
en heilnæm þiggja ráð.
Umfram allt þenktu þó:
Son Guðs bar þínar syndir
og svo þú miskunn fyndir
saklaus fyrir' sekan dó.

3 Drottinn, lát mig ei dyljast
dárlega syndir við
þó hér um stund megi hyljast.
Herra trúr, þess ég bið:
Nær heimi fer ég frá
örvænting ei mér grandi,
orð þitt og sannleiks andi
hjartað mitt huggi þá.

T Hallgrímur Pétursson Ps. 16
L Antwerpen 1540 – Thomissøn 1569 – Sb. 1589
Ick had een ghestadich minneken
Eldra númer 313
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is