Sálmabók

677. Góður engill Guðs oss leiðir

1 Góður engill Guðs oss leiðir
gegnum jarðneskt böl og stríð,
léttir byrðar, angist eyðir,
engill sá er vonin blíð.

2 Mitt á hryggðar dimmum degi
dýrðlegt oss hún kveikir ljós,
mitt í neyð á vorum vegi
vaxa lætur gleðirós.

3 Þó að lokist aumum aftur
allar dyr á jörðu þrátt,
helgrar vonar himinkraftur
hjálparlausum eykur mátt.

4 Þá er hjartabenjar blæða,
bregst hver jarðnesk stoð og hlíf,
megnar sollin sár að græða
signuð von um eilíft líf.

5 Þá er jarðnesk bresta böndin
blítt við hjörtu sorgum þjáð
vonin segir: Heilög höndin
hnýtir aftur slitinn þráð.

6 Blessuð von, í brjósti mínu
bú þú meðan hér ég dvel,
lát mig sjá í ljósi þínu
ljómann dýrðar bak við hel.

T Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
L Ísólfur Pálsson 1903 – Vb. 1946
Sálmar með sama lagi 737
Tilvísun í annað lag 534
Eldra númer 404
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is