Sálmabók

697. Ég bið sú gæfa gefist mér

Á vegi

1 Ég bið sú gæfa gefist mér
að gleyma ei þeim sem líða
og mitt í hörðum hildarleik
:,: við harm og dauða stríða. :,:

2 Ég bið að megi ég muna æ
þær myrtu og rændu þjóðir,
að sérhvert heimsins sorgarbarn
:,: er systir mín og bróðir. :,:

3 Ég veit að allt það flóttafólk
sem flæmist hrætt og smánað
á eitt og sama ættarland
:,: sem einnig mér var lánað. :,:

4 Og þó ég heyri aðeins óm
af öllum heimsins gráti
þá erum við á einni jörð
:,: og öll á sama báti. :,:

T Hjörleifur Hjartarson 2015
L Daníel Þorsteinsson 2015

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is