Sálmabók

710. Á meðan sól og máni lýsa

1 Á meðan sól og máni lýsa
og moldin fæðir grösin sín
og fuglar kvaka, lindir líða
vor lofgjörð stígur, Guð, til þín.

2 Á meðan blikar bros í auga
og barmi hlýjar vinartal
og hugir mætast, hendur bindast
þig hjartað þrá og lofa skal.

3 Á meðan sök í sand er skrifuð
og sáttarorð um varir fer
svo kali víki, hatur hverfi
þinn helga anda lofum vér.

4 Á meðan beygðum von er vakin
og vitjað manns sem gleymdur er
og sjúkum bjargað, svöngum líknað
er sungin lofgjörð einum þér.

5 Á meðan bæn þín berst að ofan
og bergmál vekur hér á jörð
með löngun til að líkjast Kristi
þér lof sé, dýrð og þakkargjörð.

6 Á meðan, Guð, þín miskunn varir
og máttur þinn og hátign skín
og líkn þín er vort ljós og hæli
vor lofgjörð stígur upp til þín.

T Anders Frostenson – Sigurbjörn Einarsson, 2008 – Vb. 2013
L Bjarne Stølen 2000 – Vb. 2013
Det syng så vakre tonar gjennom kvelden
Eldra númer 841
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is