Sálmabók

712. Er vaknar ást á vori lífs

1 Er vaknar ást á vori lífs,
himinninn er nálægt þér,
múr sinn rjúfi hjarta þitt,
himinninn er nálægt þér.
Er rústir lifna og léttir þraut
og regnið lífgar eyðisand,
þorsta þínum svalað er.
Himinninn er nálægt þér.

2 Ef friðarhliðin ljúkast upp,
himinninn er nálægt þér,
ljós Guðs dýrðar skín við þér,
himinninn er nálægt þér.
Ef hlekkjum efans þú losnar frá
og hjartað fagnar nýrri þrá,
þorsta þínum svalað er.
Himinninn er nálægt þér.

T Linda S. Prindule 2007 – Kristján Valur Ingólfsson 2010 – Vb. 2013
Debesis ir tuvu klāt / Kad mīlestība smaržot sāk
L Linda S. Prindule 2007 – Vb. 2013
Debesis ir tuvu klāt
Eldra númer 909
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is