Sálmabók

715. Allt þér, Jesú, glaður gef ég

1 Allt þér, Jesú, glaður gef ég,
gafstu sjálfur allan þig.
Ekkert vil ég undan skilja,
eiga máttu, Drottinn, mig.
:,: Allt ég færi þér. :,:
Allt þér, Jesú, fús ég færi.
Allt ég færi þér.

2 Allt þér, Jesú, glaður gef ég,
gjöfin samt of lítil er.
Feginn vildi' eg fleira gefa,
færa, hjartans vinur, þér.
Allt ég færi þér ...

3 Allt þér, Jesú, glaður gef ég,
gef mér helgan anda þinn.
Lát mig, Herra, frið þinn finna,
fögnuð streyma' í hjartað inn.
Allt ég færi þér ...

T Judson W. van DeVenter 1896 – Benedikt Jasonarson, 1980
All to Jesus I surrender
L Winfield S. Weeden 1896
SURRENDER (Weeden) / All to Jesus I surrender

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is