Sálmabók

717a. Þakkir, fyrir hvern fagran morgun

1 Þakkir, fyrir hvern fagran morgun,
þakkir, fyrir hvern nýjan dag.
Þakkir, þú vilt mér lýsa, leiða lífs um æviveg.

2 Þakkir, þú gefur góða vini,
þakkir, Guð elskar sérhvern mann.
Þakkir, að ég get endurgoldið og elsku veitt í mót.

3 Þakkir, jafnt fyrir grát og gleði,
þakkir, þú gefur styrk og þor.
Þakkir, þú sorgir berð á burt og bætir angur allt.

4 Drottinn, náð þín er veitt án enda,
Drottinn, ég ávallt treysti þér.
Drottinn, ó, Drottinn þér ég þakka að ég þakka kann.

T Martin G. Schneider 1961, 1963 – Kristján Valur Ingólfsson 1971
Danke für diesen guten Morgen
L Martin G. Schneider 1961
Danke für diesen guten Morgen

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is