Sálmabók

723. Ég leit eina lilju í holti

Liljan

1 Ég leit eina lilju í holti,
hún lifði hjá steinum á mel,
svo blíð og svo björt og svo auðmjúk
en blettinn sinn prýddi hún vel.
Ég veit það er úti um engin
mörg önnur sem glitrar og skín.
Ég þræti’ ekki’ um litinn né ljómann,
en liljan í holtinu’ er mín.
:,: Þessi lilja’ er mín lifandi trú. :,:
Hún er ljós mitt og von mín og yndi,
þessi lilja’ er mín lifandi trú.

2 Og þó að í vindinum visni
á völlum og engjum hvert blóm
og haustvindar blási um heiðar
með hörðum og deyðandi róm
og veturinn komi með kulda
og klaka og hríðar og snjó,
hún lifir í hug mér sú lilja
og líf hennar veitir mér fró.
Þessi lilja’ er mín ...

T Enskur höf. ók. – Þorsteinn Gíslason, 1933 – Vb. 2013
L Höf. ók. – Vb. 2013
Eldra númer 917
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is