Sálmabók

724. Enginn þarf að óttast síður

1 Enginn þarf að óttast síður
en Guðs barna skarinn fríður,
fugl í laufi innsta eigi,
ekki stjarna' á himinvegi.

2 Sjálfur Guð á Síonsfjöllum
sól og skjöldur reynist öllum
barnaskara' í böli' og hörmum,
ber hann þau á föðurörmum.

3 Engin neyð og engin gifta
úr hans faðmi má oss svipta,
vinur er hann vina bestur,
veit um allt er hjartað brestur.

4 Hann vor telur höfuðhárin,
heitu þerrar sorgartárin,
hann oss verndar, fatar, fæðir,
frið og líf í sálum glæðir.

5 Syng því dátt með sigurhljómi,
Síons hjörð, og einum rómi,
hræðast þarftu' ei, fjendur falla
fyrir Drottins orði snjalla.

6 Svo er endar ógn og stríðin
upp mun renna sigurtíðin,
oss þá kallar heim til hallar
himna Guð er lúður gjallar.

T Lina Sandell 1850, 1855 ̶ Fredrik Engelke 1873 v. 4 – Friðrik Friðriksson, 1917 – Sb. 1972
Tryggare kan ingen vara
L Sænsk laggerð af þýsku þjóðlagi – Sb. 1972
Tryggare kan ingen vara
Eldra númer 505
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is