Sálmabók

727. Ó, lífsins faðir, líkna þú

1 Ó, lífsins faðir, líkna þú
og leystu syndabönd.
Gef vonarsnauðum von og trú
í vissu þess að nær er nú
:,: þín milda hjálparhönd. :,:

2 Þinn sonur, Kristur, lífsins lind,
er lausn og frelsi manns,
það orð sem læknar sekt og synd
og signir lífið krossins mynd
:,: og blessun býður hans. :,:

3 Í helgum anda hingað snú,
þín heilög áhrif skær,
að lægja efann, efla trú.
Er æða stormar birtist þú
:,: sem blíður himinblær. :,:

4 Þá sefast hjartans þrá til þín
og þelið hlýnar kalt
og lýkst oss upp hin ljúfa sýn
til lífs þar gleðin aldrei dvín,
:,: ummyndað, blessað allt. :,:

T Karl Sigurbjörnsson 2008 – Vb. 2013
L Charles H.H. Parry 1888 – Vb. 2013
REPTON/ Dear Lord and Father of Mankind
Sálmar með sama lagi 734
Eldra númer 849
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is