Sálmabók

733. Á einum Guði er allt mitt traust

1 Á einum Guði' er allt mitt traust,
engu skal ég því kvíða,
angur míns hjarta efalaust
á sér hans mildin blíða.
Enn þó hörmungar efnin vönd
á mig frekt geri' að leita,
almáttug Drottins hægri hönd,
hún kann því öllu' að breyta.

2 Mannanna stoð og styrkur bregst,
stofnar það oft til nauða,
ævin með sorgum áfram dregst,
endar loksins með dauða.
Þá hljóta skiljast hold og önd
og hérvist lífsins dvínar,
almáttug Drottins hægri hönd,
hún geymi sálu mína.

3 Í mínum Guði' eg huggun hef
hverju sem öðru sætir,
mig á hans vald og vilja gef,
veit ég það hann mín gætir,
þó synda, eymda' og sorgar bönd
sárt vilji hjartað meiða,
almáttug Drottins hægri hönd,
hún mun þau af mér greiða.

4 Trúr er minn Guð sem treysti' eg á,
trúr er Jesús, minn Herra,
hans blessuð forsjón best mun sjá
nær böl og eymd mín skal þverra.
Sem bylgjur hafs við sjávarströnd
sín takmörk ei forláta,
eins skammtar Drottins hægri hönd
hverri sorg tíð og máta.

T Hallgrímur Pétursson, um 1680 – Sb. 1772
L Claudin de Sermisy 1529 – Antwerpen 1540 – Sb. 1871
Was mein Gott will, g‘scheh allzeit
Eldra númer 379
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is