Sálmabók

767. Komið er sumarið

1 Komið er sumarið,
kærleiki Drottins oss gleður,
komum nú fyrir hann
lotning og þakkargjörð meður.
Látum vor ljóð
lofgjörðar fylla þann óð
nú sem öll náttúran kveður.

2 Vorfegurð himinsins
vegsamar gjafarann ljósa,
vorgróði jarðar
og blómskrautið ilmandi rósa,
vorloftið hlýtt,
vorkvæði söngfugla nýtt
guðlegu hjálpræði hrósa.

3 Vér tökum undir
og vegsemd, ó, faðir, þér tjáum,
vér sem í öllu
þinn guðdóm og kærleika sjáum.
Hjörtunum í
himinblóm guðhræðslu ný
gef nú að gróðursett fáum.

4 Nýkomið sumar
er nú aftur sjáum vér skína
nýr er oss vottur
um guðlega trúfesti þína.
Fagnandi því
föðurvald leggjum oss í.
Enn muntu' oss ástríki sýna.

5 Velkomin gjöf þín
oss veri nú sumarið bjarta,
við henni tökum
með glaðværu' og þakklátu hjarta.
Heill til vor snú,
hjá oss í sumar lát nú
blóm þinnar blessunar skarta.

T Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi – Sb. 1886
L Stralsund 1665 – Halle 1741 – PG 1861
Lobe den Herren, den mächtigen König
Sálmar með sama lagi 470 485 517 77 771
Eldra númer 478
Eldra númer útskýring T

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is