Sálmabók

810. Drottinn Guð, þig göfgum vér

Te Deum

Drottinn Guð, þig göfgum vér.
Drottinn Guð, þig dýrkum vér.
Þig, faðir eilífi, vegsamar öll veröldin.
Þig lofar engla helgur her,
allt heimsins veldi lýtur þér.
Þig lofa sælir serafar,
þér syngja vegsemd kerúbar:
Heilagur, heilagur, heilagur ert þú,
Guð, Drottinn allsherjar.
Þín heilög vera, hátign þín
um himna, jörð og geima skín.
Þig prísa spámenn, postular
og píslarvotta fylkingar
og heilög kirkjan hér á jörð
þér helgar lof og þakkargjörð.
Ó, faðir vor, vér þökkum þér,
ó, Kristur Drottinn, dýrð sé þér,
ó, lífsins andi, lof sé þér,
þig, heilög þrenning, heiðrum vér.
Guðs sonur, Kristur, kóngur hár,
sem komst að græða mein og sár,
þú gerðist hold til hjálpar oss
og háðung leiðst og dóm og kross.
Þú hefur dauðans afli eytt
og oss til lífsins veginn greitt.
Þú situr Guðs á hægri hönd
og hefur alheims ríkisvönd.
Þú birtist enn á efstu tíð
og allan dæmir heimsins lýð.
Vér biðjum: Þjóna þína styð,
sem þú með blóði keyptir frið.
Veit þú vér öðlumst arfleifð þá
sem ávann náð þín, rík og há.
Þinn söfnuð, Herra, hólpinn ger,
gef honum eilíft líf með þér.
Veit honum styrk og vörn og skjól
og vegsemd við þinn konungsstól.
Nafn þitt sé blessað nær og fjær
og náð þín trú og dýrðarskær.
Við synd og háska hverja stund
oss hlífi, Guð, þín sterka mund.
Miskunna oss, í líkn oss leið,
ver ljós og stoð í allri neyð.
Hjá einum þér er athvarf, hlíf,
vor eina hjálp og sanna líf.
Guð allrar vonar, ver oss hjá
og veit oss þína dýrð að sjá.

T Fornkirkjulegur sálmur – Martin Luther 1529 – Sb. 1589 – Sigurbjörn Einarsson – Sb. 1972

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is