Tónleikar í Kópavogskirkju

13. febrúar 2018

Tónleikar í Kópavogskirkju

Nokkrir listvinir Kópavogskirkju hafa ákveðið að stofna til tónleika 21. febrúar næstkomandi klukkan 20:00 í kirkjunni. Tónleikarnir eru hluti af söfnunarátaki sóknarnefndar Kársness til viðgerða á steindum gluggum Gerðar Helgadóttur sem liggja undir skemmdum. Á Kársnesi og í nærumhverfi Kópavogskirkju býr m.a. fjöldinn allur af tónlistarfólki. Á efnisskrá tónleikanna er m.a. frumfluttningur á verki Martial Nardeau en verkið heitir “Gerður” og er samið til heiðurs listakonunni.

Kostnaður viðgerða liggur ekki fyrir en mun skipta tugum milljóna króna. Kársnessöfnuður getur ekki staðið straum af viðgerðunum nema með góðri hjálp. Á síðustu misserum var ytra byrði kirkjunnar tekið í gegn og kirkjan máluð að utan. Ungur aðdáandi sagði þá í hrifngu: „Hún er orðin falleg aftur.”

Þeir sem vilja tryggja sér miða fyrir tónleikana geta keypt miða milli kl. 10.00-13.00 virka daga í Safnaðarheimili kirkjunnar (sími: 554-1898, netfang:kopavogskirkja@kirkjan.is), Hábraut 1a. Miðaverð er 3.500 krónur og rennur allur ágóði óskertur til verkefnisins.

Þeir sem vilja leggja átakinu lið en komast ekki á tónleikana geta styrkt verkefnið með frjálsu framlagi á reikning: 0536-26-630000 Kennitala: 691272-0529

Listamennirnir sem koma að tónleikunum eru:

    - Martial Nardeau

    -Elísabet Waage, harpa

    -Hafdís Vigfúsdóttir, flauta

    -Kristján Matthíasson, fiðla

    -Lenka Mátéová, orgel

    -Peter Máté, píano

    -Svava Bernharðsdóttir, lágfiðla

    Gunnar Guðbjörnsson, tenór

    Einar Clausen, tenór

    María Jónsdóttir, sópran

    Magnea Tómasdóttir, sópran

    Jóhanna Ósk Valsdóttir, mezzo-sópran

    Bjarni Jónatansson, píanó
    
    Lilja Cardew, pianó

    Oktetinn Einn tvöfaldur

    Árni Harðason, stjórnandi

    Flautukórinn

    Kristín Stefánsdóttir, stjórnandi

    Kynnir verður:

    Theódór Júlíusson, leikari

  • Auglýsing

  • Tónlist

  • Viðburður

Prestar í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra ásamt fyrirlesurum

Vorfundur presta í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra

26. apr. 2024
...síðasti prestafundur sr. Helgu Soffíu sem prófastur
Forsíðumynd-Sumardagurinn fyrst -skrúðganga á kirkjuplani.jpg - mynd

Sumardagurinn fyrsti í Bústaðakirkju

26. apr. 2024
...fjölsótt dagskrá í kirkjunni
Digraneskirkja

Laust starf

26. apr. 2024
...prests við Digranes- og Hjallaprestakall