Hversu nálægt?

27. apríl 2020

Hversu nálægt?

Viðeyjarkirkja – kirkjubekkir eru átta – hver bekkur er 2.21 m að lengd – hve margir kirkjugestir geta verið hér eftir rýmkun á samkomubanni? Tveggja metra reglan í fullu gildi og hún virt!

Samkomubannið mun standa yfir næstu mánuði í einhverri mynd.

Tveggja metra reglan um fjarlægð milli fólks mun standa sem gullin regla næstu mánuðina.

Sú regla hefur víða áhrif í kirkjustarfi en eftir er að móta allt starf með það í huga hér heima og víðar.

Og þó.

Vatíkanið segir að prestar eigi að veita fólki sem er að deyja af völdum kórónaveirunnar sakramenti sjúkra og altarissakramentið. 

Erkibiskupinn í Kantaraborg segir að virða skuli fjarlægðarreglu.

Alvarlega veiku fólki og deyjandi er oft boðið hvort það vilji ræða við prest.

Prestur sem kemur í hlutverki sálusorgarans og huggarans til manneskju sem er að deyja vegna kórónusýkingar setur sjálfan sig í hættu. Lífshættu.

Það er hluti af starfinu, kölluninni, segir páfinn í Róm. Erkibiskupinn í York varar prestana hins vegar við að koma of nálægt kórónuveirusjúkum á dánarbeði. Sjúkrahúsprestarnir sjái um þau.

Nú sem aldrei er þörf á kirkjunni, slíkt heyrist víða.

Haft er eftir forstöðumanni stofnunar í siðfræði og læknisfræði við kaþólska Twickenham-háskólann í London að það vekji furðu hve margar kirkjur séu lokaðar og auk þess sé þverstæða fólgin í því að fullyrða að prestar geti ekki sinnt sjúkum og deyjandi í ljósi þess að sjálfur frelsarinn hafi gefið líf sitt fyrir mennina. Hann telur það rangt að banna prestum að sálusorga hina deyjandi við þessar aðstæður. En vitaskuld verði að útvega prestunum viðeigandi hlífðarklæði gegn veirunni. Hver prestur verði að gera þetta upp við sjálfan sig – hann segir jafnframt að neyðarástandið sé líka stór „áskorun“ fyrir presta til að sýna hugrekki og sjálfstæði.

Amerískur erkibiskup þeirra kaþólsku hefur lýst því yfir að syndafyrirgefningu sé ekki hægt að veita „online“ – eða rafrænt gegnum síma eða tölvu. Hins vegar megi athuga hvort hægt sé að afhenda það hlutverk lækni eða hjúkrunarfólki.

Margir prestar anglíkönsku kirkjunnar hafa lýst því yfir að þeir vilji vinna á sjúkrahúsum en forysta kirkjunnar hefur ekki heimilað þeim það enda þótt þeir kunni að fá hlífðarklæðnað eins og hjúkrunarfólkið. Þeir eru hvattir til að sýna fólki fremur siðferðilegan stuðning – sjúkrahúsprestar séu að störfum, því megi ekki gleyma. Sjúkrahúsprestarnir eru öllum hnútum kunnugir og færir á sínu sviði. Þeir eru í hlífðarklæðum við störf sín. Aðstæður eru vissulega sérstakar þar sem hinir deyjandi mega ekki fá heimsóknir frá sínum nánustu. Ekki er hægt að halda í hönd viðkomandi eða faðma. Það sé nöturleg staðreynd.

Skoðanir eru skiptar – en veiran kærir sig kollótta um það.

Eldri borgarar Rafræn sálusorgun hefur margeflst og sýnt aðlögunarhæfni kirknanna. Eins er símtækið mikið notað, prestar hringja í fólk, og það getur hringt til þeirra. Tölvupóstur er einnig mikið notaður. Margir söfnuðir víða um land hafa haft samband við til dæmis eldra fólk og kannað hagi þess. Ekki má gleyma því að margt eldra fólk notast ekki við tölvur og snjallsíma. Kirkjur sem eru að streyma margvíslegu efni ná ekki til þess hóps. Honum verður þá að sinna með öðrum hætti.

Hér heima eru það sjúkrahúsprestarnir sem hafa verið í fremstu víglínu úr röðum starfsfólks kirkjunnar þegar kemur að kórónafaraldrinum. Þeir hafa staðið sig með miklum sóma. Annað kirkjunnar fólk hefur kappkostað að halda starfi safnaðanna áfram eins og frekast hefur verið unnt og gripið oft til nýstárlegra aðferða – og nútímalegra – við boðun fagnaðarerindisins.

En metrarnir tveir, þeir verða áfram meginreglan. Virðum þá!

hsh/Kristeligt Dagblad


  • Alþjóðastarf

  • Forvarnir

  • Frétt

  • Kærleiksþjónusta

  • Menning

  • Öldrunarþjónusta

  • Safnaðarstarf

  • Samfélag

  • Menning

  • Samfélag

Krakkakór.jpg - mynd

Söngvahátíð barnanna í Hallgrímskirkju

02. maí 2024
...um 200 börn sungu
Anna Sigga, sr. Sigrún og Bylgja Dís

Sumarsöngvar í fangelsi

02. maí 2024
...frásögn fangaprests
Sr. Guðmundur og sr. Guðrún á kynningarfundi á Selfossi

Síðari umferð biskupskosninga hefst í dag

02. maí 2024
...lýkur 7. maí kl. 12:00