Kristniboðsdagurinn

12. nóvember 2021

Kristniboðsdagurinn

Laufáskirkja í Eyjafirði-mynd sr. Sigurður ÆgissonMörgum finnst það mikill kostur í starfi kirkjunnar að margt er þar í föstum skorðum og góðum takti.

Það er alltaf svo að annan sunnudag í nóvember er kristniboðsdagurinn. Hann er helgaður kristniboði í starfi kirkjunnar og svo hefur verið allt frá árinu 1936.

Kristniboðsdagurinn á að minna á hið umfangsmikla kristniboð sem víða er rekið og margir koma að. Kristniboðssambandið er öflugast þeirra kristnu félagasamtaka sem stunda kristniboð. Fjöldi fólks stendur við bakið á þeirri vösku sveit sem stýrir þeim málum. Öll þau sem leggja því starfi lið hafa það í huga að hver kristin manneskja er kristniboði. Samtakamátturinn getur komið miklu til leiðar og það veit fólk.

Dagsins verður minnst í flestum kirkjum landsins og víðar.

Að þessu sinni kemur útvarpsguðsþjónusta dagsins frá Laufási við Eyjafjörð þar sem séra Gunnar Einar Steingrímsson þjónar fyrir altari en Katrín Ásgrímsdóttir, skógræktarbóndi og ritari stjórnar Kristniboðssambandsins prédikar. Katrín sat um árabil á kirkjuþingi og í kirkjuráði. Guðsþjónustan hefst venju samkvæmt kl. 11.00 – á Rás 1.

Kristniboðssambandið dregur fram þrjú atriði til að leiða hugann að:
Í fyrsta lagi má nefna að á liðnum áratugum hefur fólki fækkað í þjóðkirkjunni hér á landi og hlutfallslega færri eru skráðir í kristin trúfélög en var fyrir t.d. 30 árum. En það er ekki öll sagan, því að á móti má nefna að kristnu fólki hefur á sama tíma fjölgað mikið á starfsakri kristniboðsins. Um 65 þúsund manns eru skráðir í kirkjuna í Konsó, en þar að auki er starfað í Voító og Ómó Rate í Eþíópíu. Eins er ávöxtur starfsins í norðvesturhluta Keníu mikill og milli 20 og 30 þúsund manns sem eru virkir í starfi kirkjunnar þar. Þó svo hér hafi fækkað hefur fjölgað þar fyrir tilstilli kristniboðsins. Biðjum fyrir fólki á starfssvæðum þess og minnumst sérstaklega presta, prédikara og djákna sem bera hita og þunga starfsins við krefjandi aðstæður. Biðjum um frið, sátt og réttlæti í Eþíópíu þar sem gætir vaxandi spennu milli þjóðflokka og héraða, einkum í norðurhluta landsins.

Í öðru lagi minnumst við bræðra og systra sem ofsótt eru vegna trúar sinnar. Víða um heim helga kirkjur fyrstu tvo sunnudaga nóvembermánaðar hinum ofsóttu og hvetja til fyrirbæna fyrir þeim. Fólk sem snýst frá annarri trú þarf oft að finna sér nýtt tengslanet, sem er eðlilega kirkjan á hverjum stað. Vegna faraldursins og samkomutakmarkana var þessi hópur mjög berskjaldaður, því þetta er fólk sem fjölskyldan hefur afneitað í þeirri von að viðkomandi snúi aftur og heiður fjölskyldunnar verði endurheimtur. Biðjum fyrir kristnu fólki sem sætir ofsóknum víða um heim.

Í þriðja lagi eru nýbúar, flóttamenn og umsækjendur um vernd hér á landi. Nokkrir tugir taka þátt í íslenskukennslu Kristniboðssambandsins. Við berum öll ábyrgð á þessu fólki og það er hlutverk okkar að biðja fyrir því og benda því á Jesú Krist með því að vera tilbúin að tala við það um trú okkar. Í þessu sambandi er rétt að benda á nýsamþykkta stefnu þjóðkirkjunnar í málefnum innflytjenda og fólks á flótta.


Uppfærð frétt: Vegna hertra sóttvarnareglna sem taka gildi á miðnætti fellur sunnudagssamkoman niður á Akureyri sem halda átti í tilefni dagsins í félagsheimili KFUM og K í Sunnuhlíð kl. 17. 00. Þar ætlaði Beyene Gailassie að segja frá uppvexti sínum, starfi kristniboðsins í Konsó í Eþíópíu og flytja hugvekju. 

Til stóð að Kristniboðsfélag karla héldi árlega kaffisölu sína á kristniboðsdaginn en í ljósi sóttvarnatilmæla var ákveðið að fella hana niður, annað árið í röð. Hins vegar verður samkoma i húsnæði Íslensku Kristskirkjunnar, Fossaleyni 14. kl. 20. Þar mun Guðlaugur Gunnarsson, kristniboði, flytja hugvekju, Leifur Sigurðsson, kristniboði, ávarpar samkomuna frá Japan og hópur ungmenna úr kirkjunni leiðir tónlist og söng.

Kristniboðsalmanakið 2022 kemur út í vikunni. Því verður dreift í flestar stærri kirkjur á næstu vikum en einnig má nálgast það á skrifstofu SÍK eða á Basarnum, Austurveri, Háaleitisbraut 68, Reykjavík eða hringja á skrifstofuna og fá það sent.


Prestar eru hvattir til að taka samskot en víða ferst það fyrir eða fólk geymir veskinu heima. Því er rétt að benda á gjafareikning Kristniboðssambandsins 0117-26-002800, en kennitalan er 550269-4149. Vel er við hæfi að gefa gjöf til starfsins á þessum degi.

Heimasíða Kristniboðssambandsins

Facebókarsíða Kristniboðssambandsins

rg/hsh


Frá vígsluhátíð heimavistar stúlkna í framhaldsskólum í Konsó


Hópurinn sem fór með sr. Kjartani Jónssyni fyrir utan dómkirkjuna í Kapenguria janúar 2019


Nemendur í Kamayech Secondary School í Keníu syngja fyrir gesti

  • Frétt

  • Leikmenn

  • Menning

  • Safnaðarstarf

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Trúin

  • Viðburður

  • Fræðsla

Sr. Guðrún og frú Agnes

Nýkjörnum biskupi fagnað á biskupsstofu

07. maí 2024
...fjölmiðlum boðið til fagnaðarins
Guðrún Karls-ný mynd.jpg - mynd

Sr. Guðrún Karls Helgudóttir kjörin biskup Íslands

07. maí 2024
...síðari umferð lauk í dag