Starf prests í Tjarnaprestakalli

27. maí 2022

Starf prests í Tjarnaprestakalli

Ástjarnarkirkja í Tjarnaprestakalli - mynd: hsh

Biskup Íslands óskar eftir presti til þjónustu í Tjarnaprestakalli, Kjalarnesprófastsdæmi. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, en í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að niðurstaða um ráðningu liggur fyrir.

Sjá auglýsingu um starfið í heild sinni hér sem og þarfagreiningu.

Um val á umsækjendum er vísað til starfsreglna kirkjuþings um ráðningu í prestsstörf nr. 4/2021 og starfsreglna um presta nr. 1011/2011.

Úr þarfagreiningu Tjarnaprestakalls
Prestakallið skiptist í tvær sóknir, Ástjarnarsókn og Kálfatjarnarsókn. Sóknarbörn eru rétt liðlega ellefu þúsund. Þessar sóknir eru að mörgu leyti ólíkar.

Kálfatjarnarsókn nær yfir Voga og Vatnsleysuströnd. Undanfarið hefur mikil uppbygging átt sér stað í sveitarfélaginu Vogum og vænta má tvöföldunar íbúafjölda í sveitarfélaginu á næstu árum en íbúafjöldi telur nú um 1.300 manns. Íbúar sveitarfélagsins eru á öllum aldri. Í sveitarfélaginu er einn grunnskóli og einn leikskóli.

Kálfatjarnarsókn er gamall og rótgróinn söfnuður. Söfnuðurinn á Kálfatjarnarkirkju sem er staðsett á Vatnsleysuströndinni. Kálfatjarnarkirkja stendur á fallegum stað og er eftirsótt athafnakirkja. Við kirkjuna er þjónustuhús sem er notað sem viðbót fyrir stórar athafnir sem og minni fundi og samverur.

Ástjarnarsókn nær yfir Ásland, Velli, Skarðshlíð og Hamranes í Hafnarfirði. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í þessum hverfum og er viðbúið að innan fárra ára verði fjöldi sóknarbarna Ástjarnarsóknar kominn upp í 18 þúsund.

Ástjarnarsöfnuður var stofnaður árið 2001 og hóf starfsemi sína í núverandi húsnæði árið 2017. Húsnæðið er ríflega 800 fermetrar að stærð og skipist í skrifstofur, eldhús, kaffihús og stóran fjölnota sal sem getur tekið allt upp í 200 manns í sæti - auk salerna, geymslurýmis og sturtuaðstöðu fyrir starfsfólk. Núverandi húsnæði var upphaflega teiknað sem safnaðarheimili og er áætlað að í framtíðinni verði byggð kirkjubygging við núverandi húsnæði.

Tónlistarstjóri er í fullu starfi við prestakallið. Auk tónlistarstjóra starfar í Ástjarnarkirkju kirkjuvörður sem sér um daglegan rekstur safnaðarheimilisins og heldur utan um allt sem í gegnum það fer.

Starfinu fylgja viðbótarskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við Þjóðkirkjuna – Biskupsstofu og önnur kirkjuleg stjórnvöld.

Allar gildar umsóknir fara til valnefndar sem fer yfir allar umsóknir og boðar umsækjendur til viðtals innan þriggja vikna frá lokum umsóknarfrests, sbr. 8 gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.

Til að umsækjandi teljist hæfur í starfið þarf viðkomandi að hafa lokið mag. theol/cand. theol prófi frá Háskóla Íslands ásamt starfsþjálfun hjá Þjóðkirkjunni – Biskupsstofu.

Um starfið gilda lög um þjóðkirkjuna nr. 77/2021, kjara- og ráðningarsamningar, siðareglur, starfsreglur er kirkjuþing setur og samþykktir um innri málefni kirkjunnar. Er einkum vísað til starfsreglna um presta.

Heimilt er að óska eftir því að almennar prestskosningar fari fram samkvæmt 13. gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.

Fyrirvari
Biskupafundur hefur unnið að breytingum á skipan prestakalla um allt land með sameiningum tveggja eða fleiri í eitt stærra prestakall. Ofangreind þjónusta er auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að vera má að biskupafundur leggi tillögur fyrir kirkjuþing sem kunna að leiða til breytinga á skipan prestakalla, hljóti þær samþykki kirkjuþings.

Sr. Hans G. Alfreðsson, prófastur við ráðningarferli þetta, veitir nánari upplýsingar um umfang og eðli starfsins í síma 898 9701 eða á netfangið hans.gudberg.alfredsson@kirkjan.is. Einnig er hægt að leita nánari upplýsinga, t.d. hvað varðar starfskjör og helstu reglur og skyldur varðandi starfið, hjá Þjóðkirkjunni - Biskupsstofu, s. 528 4000, eða á netfangið jona@kirkjan.is eða ragnhilduras@kirkjan.is.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 9. júní 2022.

Sækja ber rafrænt um starfið á hér á vefnum og leggja fram tilskilin fylgigögn á rafrænu formi ásamt öðrum þeim gögnum er umsækjandi kann að vilja leggja fram.

Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020.

Vakin er athygli á því að hafi umsækjandi ekki óskað nafnleyndar verður nafn hans sem umsækjanda um starfið birt á vef kirkjunnar www.kirkjan.is að liðnum umsóknarfresti. Hér er að finna eyðublað þar sem umsækjendur geta óskað nafnleyndar. Verði farið fram á almennar prestskosningar er þó ekki hægt að halda nafnleynd.

hsh


  • Biskup

  • Frétt

  • Kirkjustarf

  • Samfélag

  • Starf

  • Auglýsing