Biskup Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar og prestar innflytjenda lýsa þungum áhyggjum af stöðu flóttafólks

19. ágúst 2023

Biskup Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar og prestar innflytjenda lýsa þungum áhyggjum af stöðu flóttafólks

Biskup Íslands er meðal þeirra sem lýst hafa þungum áhyggjum sínum vegna stöðu flóttafólks á landinu, sem býr nú á götunni.

23 félagasamtök lýsa þungum áhyggjum af mjög alvarlegri stöðu sem komin er upp í málefnum fólks á flótta sem vísað hefur verið úr allri þjónustu opinberra aðila eftir neikvæða niðurstöðu umsóknar um vernd á báðum stjórnsýslustigum.

Afdrif þess, öryggi og mannleg reisn eru í hættu.

Samtökin harma að ekki skuli hafa verið tekið tillit til ítrekaðra varnaðarorða varðandi afleiðingar nýrra lagaákvæða.

Þá leikur mikill vafi á að framkvæmdin standist þær mannréttindaskuldbindingar sem íslensk stjórnvöld hafa undirgengist.

Margt sem ráðamenn hafa sagt í þessari umræðu er villandi, óljóst og byggir á skorti á upplýsingum um raunverulega stöðu fólksins.

Samtökin skora á yfirvöld að tryggja öryggi þessa hóps, mannréttindi og grunnaðstoð með virku samráði við hjálpar- og mannréttindasamtök.

Því boða neðangreind samtök stjórnvöld til samráðsfundar næst komandi mánudag 21. ágúst 2023 klukkan 17:00 í sal Hjálpræðishersins á Suðurlandsbraut 72.

Sérstaklega hefur verið óskað eftir viðveru hlutaðeigandi ráðherra í ríkisstjórn Íslands.

Reykjavík, 18. ágúst 2023

Barnaheill

Biskup Íslands fyrir hönd Þjóðkirkjunnar

FTA - félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd

Geðhjálp

GETA hjálparsamtök

Hjálparstarf kirkjunnar

Hjálpræðisherinn á Íslandi

Íslandsdeild Amnesty International

Kvenréttindafélag Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands

No Boarders

Prestar innflytjenda, Þjóðkirkjunnni

Rauði krossinn á Íslandi

Réttur barna á flótta

Samhjálp

Samtökin 78

Solaris

Stígamót

UNICEF á Íslandi

UN Women á Íslandi

W.O.M.E.N. – samtök kvenna af erlendum uppruna

Þroskahjálp

ÖBÍ - heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi

 

slg



Myndir með frétt

  • Biskup

  • Flóttafólk

  • Hjálparstarf

  • Kærleiksþjónusta

  • Prestar og djáknar

  • Þjóðkirkjan

  • Alþjóðastarf

Prestar í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra ásamt fyrirlesurum

Vorfundur presta í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra

26. apr. 2024
...síðasti prestafundur sr. Helgu Soffíu sem prófastur
Forsíðumynd-Sumardagurinn fyrst -skrúðganga á kirkjuplani.jpg - mynd

Sumardagurinn fyrsti í Fossvoginum

26. apr. 2024
...fjölsótt dagskrá í kirkjunni
Digraneskirkja

Laust starf

26. apr. 2024
...prests við Digranes- og Hjallaprestakall