Boðið í bíó

23. október 2023

Boðið í bíó

Kyrrðarbænasamtökin bjóða í Bíó Paradís í kvöld, 23. október kl. 19:00.

Sýnd verður kvikmyndin Thomas Keating: A Rising Tide of Silence, sem vann áheyrendaverðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Aspen (Aspen Film Festival) árið 2013.

Leikstjórar myndarinnar eru Elena Mannes og Peter C. Jones.

Í kvikmyndinni er dregin upp mynd af lífi Thomasar Keating sem var einn helsti kennimaður innan hugleiðsluvíddar kristinnar trúar á síðustu áratugum.

Thomas var trappistamunkur  og einn af stofnendum Contemplative Outreach Ltd. sem eru móðursamtök Kyrrðarbænasamtakanna á Íslandi en samtökin voru stofnuð til stuðnings við iðkendur Kyrrðarbænarinnar (Centering Prayer).

Thomas var einn þriggja munka sem þróuðu aðferð Kyrrðarbænarinnar, sem er þögul bæn, meðal annars með ritninguna og 14. aldar ritið The Cloud of Unknowing að leiðarljósi.

Thomas er virtur höfundur yfir 30 bóka og hafa tvær þeirra verið gefnar út á íslensku.

Þær eru Vakandi hugur, vökult hjarta í þýðingu Nínu Leósdóttur og Leiðin heim í þýðingu sr. Karls Sigurbjörnssonar.

Auk þess eru til fjölmargar myndbandsupptökur af fyrirlestrum hans.

Thomas beitti sér fyrir því að koma af stað samtali á milli mismunandi trúarbragða.

Thomas fæddist í New York þann 7. mars árið 1923.

Foreldrar hans voru auðugir og það varð fjölskyldunni töluvert áfall þegar hann ákvað að gerast munkur.

Í kvikmyndinni segir Thomas frá köllun sinni, frá samskiptum við fjölskyldu sína, frá stjórnartíð sinni sem ábóti, trúarlegum upplifunum sínum, meðal annars í tengslum við seinni heimstyrjöldina og mörgu fleiru.

Thomas hafði sterk tengsl við Ísland, en þegar hann var ungur drengur var ung íslensk kona, Selma Ólafsson, á heimilinu sem hugsaði um börnin.

Þegar fjölskylda hans brást illa við ákvörðun hans um að gerast munkur var það íslenska fóstra hans sem studdi hann dyggilega.

Thomas kom til Íslands árið 2000 og margir Íslendingar hafa farið á kyrrðardaga í klaustrið í Snowmass í Colorado þegar hann dvaldi þar og fengu einstakar móttökur frá honum.

Thomas Keating lést árið 2018 þá 95 ára að aldri.

Kyrrðarbænasamtökin á Íslandi eru 10 ára gömul á þessu ári og að því tilefni er öllum áhugasömum boðið á þessa vönduðu og vel gerðu mynd um Thomas Keating sem sagði:

„Þögnin er fyrsta tungumál Guðs, allt annað er léleg þýðing.“

Kvikmyndin er á ensku og verður sýnd mánudaginn 23. október kl. 19:00 í Bíó Paradís, Hverfisgötu 54, Reykjavík.

Frítt er inn á sýninguna og eru öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.

slg


  • Fræðsla

  • Guðfræði

  • Menning

  • Trúin

  • Auglýsing

Krakkakór.jpg - mynd

Söngvahátíð barnanna í Hallgrímskirkju

02. maí 2024
...um 200 börn sungu
Anna Sigga, sr. Sigrún og Bylgja Dís

Sumarsöngvar í fangelsi

02. maí 2024
...frásögn fangaprests
Sr. Guðmundur og sr. Guðrún á kynningarfundi á Selfossi

Síðari umferð biskupskosninga hefst í dag

02. maí 2024
...lýkur 7. maí kl. 12:00