Tilnefningar hefjast í dag

7. mars 2024

Tilnefningar hefjast í dag

Tilnefningar til kjörs biskups Íslands hefjast í dag kl. 12:00, en þær fara fram rafrænt meðal þjónandi presta og djákna.

Eins og fram kom í frétt á kirkjan.is  þann 21. febrúar s.l. þá hefst tilnefning kl. 12:00 hinn 7. mars 2024 og lýkur kl. 12:00 hinn 12. mars 2024.

Tilnefningin fer fram með rafrænum hætti, sjá https://kirkjan.is/kosning

Þeir þrír einstaklingar sem flestar tilnefningar fá, eru í kjöri til biskups Íslands.

Áætlað er að kosning biskups Íslands hefjist að loknu tilnefningaferli, eða kl. 12:00 hinn 11. apríl 2024 og ljúki kl. 12:00 hinn 16. apríl 2024.

Ef tveir eða fleiri fá sama fjölda tilnefninga skulu þeir báðir eða allir vera í kjöri.

Séu tilnefndir færri einstaklingar en þrír eru þeir allir í kjöri.

Kjörstjórn telur tilnefningar innan sólarhrings frá því að tilnefningu var lokið.

Hver vígður maður sem kosningaréttar nýtur samkvæmt starfsreglum um kosningu biskups Íslands o.fl. hefur rétt til að tilnefna til biskups allt að þrjá einstaklinga sem uppfylla skilyrði til kjörs biskups Íslands.

Rétt er að geta þess, að þrátt fyrir að nokkrir prestar hafi lýst því yfir að þau muni taka tilnefningum, má tilnefna öll þau sem eru kjörgeng, en það er hver guðfræðikandídat sem fullnægir skilyrðum til þess að gegna prestsembætti í íslensku þjóðkirkjunni.

Einnig er rétt að geta þess að það má tilnefna allt að þremur, en einnig má tilnefna tvo eða jafnvel aðeins einn.

 

slg



  • Kosningar

  • Prestar og djáknar

  • Þjóðkirkjan

  • Biskup