Ályktun frá Lútherska heimssambandinu

8. mars 2024

Ályktun frá Lútherska heimssambandinu

Lútherska heimssambandið hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun:

Í þessari viku eru fimm mánuðir liðnir síðan Hamas liðar réðust á íbúa Ísraels og her Ísraels hóf hernaðaraðgerir á Gaza landsvæðinu.

Frá og með 7. október hafa ótal mannslíf glatast.

Einnig hafa mun fleiri meiðst, innviðir skemmst og fólk hrakist í miklum mæli frá heimilum sínum.

Enginn árangur hefur náðst í viðræðum um vopnahlé eða hvort gíslar Hamas-liða verði látnir lausir.

Eftir að stríðið braust út hafa aðstæður á Gaza svæðinu verið skelfilegar fyrir öll þau sem þar lifa, og versnar enn.

Nú berast fregnir af því að börn þar láta lífið vegna hungurs og vökvaskorts.

Sjúkdómar breiðast út, ekki síst vegna þess að hernaðaraðgerðir hafa beinst að heilbrigðis- og sjúkrahússtarfsemi.

Við ítrekum mikilvægi þess að yfirstandandi friðarviðræður beinist að því að fá gísla Hamas-liða verði látnir lausir og að stríðsaðgerðum á Gaza ljúki í þágu mannúðar og mannlífs á svæðinu.

Hér þarf ákveðnar ákvarðanir og aðgerðir til að tryggja frið og öryggi fólks.

Til þess þurfa stríðandi aðilar og alþjóðlegir aðilar að veita leiðsögn í því að leysa átökin sem nú eru í gangi.

Lútherska heimssambandið lýsir yfir þungum áhyggjum yfir því hve stríðið á Gaza hefur aukið við flokkadrætti og fordóma um allan heim, sem beinast bæði að Gyðingum og Palestínufólki.

Lútherska samfélagið heldur áfram að biðja fyrir öllum þeim sem þjást vegna stríðsins í Landinu helga og heldur áfram að standa með kristinni nærveru og samfélagi þar.

Lútherska heimssambandið stendur með og styður aðildarkirkjuna sína á landsvæðinu, The Evangelical Lutheran Church in Jordan and the Holy Land, starfsfólki sínu í Jerúsalem og öllum þeim sem er þjónað í þessum erfiðu aðstæðum.

 

slg


  • Ályktun

  • Flóttafólk

  • Lútherska heimssambandið

  • Samstarf

  • Alþjóðastarf