Biblíusögur á Spotify

8. maí 2024

Biblíusögur á Spotify

Á heimasíðu Fossvogsprestakalls og á Spotify er nú hægt að nálgast lestur á völdum Biblíusögum.

Sögurnar má finna hér: Sögur úr Biblíunni.

Í frétt frá Fossvogsprestakalli segir:

„Lengi hefur verið talað um mikilvægi þess að miðla biblíusögum til ungu kynslóðarinnar, þar sem skólarnir sinna slíku í minna mæli en áður.

Í Fossvogsprestakalli eru tvær kirkjur, Bústaðakirkja og Grensáskirkja og í starfi þeirra er lagður metnaður í að koma hinum góða boðskap á framfæri til barnanna og er það gert með ýmsu móti.

Barnamessur og fjölskyldumessur eru hornsteinar starfi safnaðannna yfir vetrartímann, sem og barnakórastarf, kirkjuprakkarar, TTT og æskulýðsfélagið Poný sem hefur gengið vel á liðnum vetri, auk fermingarfræðslunnar.

Mikilvægt er einnig að nýta alla farvegi miðlunar til að koma sögum Biblíunnar á framfæri og er nú stigið það skref að miðla þeim á veraldarvefnum á máli sem börnin skilja.“

Sr. Daníel Ágúst Gautason æskulýðsprestur Bústaðakirkju og Grensáskirkju fór þá leið í vor að velja nokkrar Biblíusögur sem hann miðlar nú á aðgengilegan máta.

Sjálfur les hann sögurnar við undirleik Jónasar Þóris organista, þar sem rauði þráðurinn er kærleikur Guðs til heimsins og allra manna, og þar með þín og mín.

Að sögn sr. Daníels Gauta „eru nú þegar 10 biblíusögur aðgengilegar á heimasíðu Fossvogsprestakalls og Spotify.

Þar á meðal er frásagan af mettuninni, Nóaflóðinu, Daníel í ljónagryfjunni, Sakkeusi, Samúel, Jónasi, týnda syninum, Pétri og Páli.

Eins er dæmisaga Jesú af mönnunum tveimur sem annars vegar byggði hús sitt á bjargi og hins vegar á sandi.

Jónas Þórir leikur létta tónlist fyrir og eftir hvern lestur.

Hægt er að hlusta á allar sögurnar í beit, eða hverja og eina, kannski eina á kvöldi fyrir svefninn.

Allt eftir þörfum og vilja hvers og eins“ segir sr. Daníel Gauti að lokum.


slg


Myndir með frétt

  • Biblían

  • Fræðsla

  • Kirkjustaðir

  • Kirkjustarf

  • Kirkjuvarp

  • Nýjung

  • Prestar og djáknar

  • Samstarf

  • Trúin

  • Barnastarf

Sr. Eva Björk Valdimarsdóttir

Sr. Eva Björk Valdimarsdóttir ráðin biskupsritari

18. maí 2024
...hefur störf með nýkjörnum biskupi Íslands
Háteigskirkja

Tíu sækja um Háteigsprestakall

17. maí 2024
...umsóknarfrestur rann út 14. maí